Það er nokkuð ljóst af ræðu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í fyrradag, laugardag, að þingflokkur sjálfstæðismanna ætlar sér að samþykkja orkupakka 3 á Alþingi um næstu mánaðamót.
Og þá er spurningin, hver verði pólitísk áhrif þess hér heima fyrir?
Líkleg áhrif þess eru þau að stjórnarflokkarnir og þá sérstaklega Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur verði fyrir verulegu áfalli í fylgi og að það komi smátt og smátt fram í skoðanakönnunum.
Það gæti t.d. átt þátt í að færa Sjálfstæðisflokkinn niður fyrir 20% mörkin með varanlegri hætti en hingað til. Í því fælust ákveðin kaflaskil í íslenzkum stjórnmálum og áhrifastaða flokksins svipur hjá sjón miðað við það sem áður var.
Það er nokkuð ljóst að það gæti orðið rothögg fyrir Framsóknarflokkinn, sem berst fyrir lífi sínu í samkeppni við Miðflokkinn og það gæti orðið til þess að kippa fótunum undan VG, sem hefur áreiðanlega notið vaxandi skilnings fólks á loftslagsvánni og jafnvel leitt til þess að til verði nýr flokkur græningja á Íslandi.
Þessar pólitísku afleiðingar þess að orkupakkinn verði samþykktur hafa verið fyrirsjáanlegar lengi. Þingmenn stjórnarflokkanna hljóta að gera sér grein fyrir þessu, eins og allir aðrir.
Hvað í ósköpunum veldur þá þessari ótrúlegu stífni stjórnarflokkanna í þessu tiltekna máli?
Innlit á þessa síðu vikuna 17. janúar til 23. janúar voru 4147 skv. mælingum Google.
Innlit á þessa síðu vikuna 10. janúar til 16. janúar voru 4433 skv. mælingum Google.
Innlit á þessa síðu vikuna 3. janúar til 9. janúar voru 4886 skv. mælingum Google.
Innlit á þessa síðu vikuna 27. desember til 2. janúar voru 5133 skv. mælingum Google.